Permalink Dags: 12.06.08. Flokkur: Dagbók. Ragnar Geir Brynjólfsson Email færði. 393 orð, 55 innlit.

Salzburgarnautið

Salzburgarnautið eða Salzburg Stier er heiti á  hljómpípuorgeli sem geymt er í kastalanum í Salzburg, nánar tiltekið Hohensalzburg virkinu stærsta kastalavirki í Evrópu sem gnæfir í meira en 100 metra hæð yfir borginni og sem byrjað var að byggja á 11. öld. Það var erkibiskupinn í Salzburg, Leonard von Keutschach sem jafnframt var hertogi og stjórnandi Salsburgar sem í þá tíð var sjálfstætt hertogadæmi sem lét byggja Salzburgarnautið árið 1502 til að nota það sem klukku og sírenu fyrir borgina. Til að byrja með gat orgelið aðeins gefið frá sér fáa hljóma og þegar þeir glumdu minnti hljómurinn á nautsbaul. Salzborgarar voru því fljótlega farnir að kalla spilverkið í kastalanum 'nautið'. Frá árinu 1502 hefur nautið baulað þrisvar á dag til að gefa borgarbúum til kynna hvað tímanum líður. Fyrir 500 ára afmælið árið 2002 var 'nautið' tekið í gegn og lagfært.

Á þessum tíma hefur 'nautið' þróast talsvert frá því að geta spilað fá tóna yfir í að geta spilað lög. Meðal þeirra sem sömdu lög fyrir Salzburgarnautið var Leopold Mozart faðir Wolfgangs Amadesusar Mozart. Hann endurbætti 'nautið' þannig að hægt var að koma tólf lögum fyrir á tromlunni sem stjórnar spilverkinu og því var hægt að skipta um lag sem nautið spilaði fyrir hvern mánuð ársins.

Nýlega var ég á ferðalagi á þessum slóðum og á skoðunarferð um kastalann var stöðvað við lítinn glugga þar sem hægt var að sjá inn í herbergi 'nautsins'. Ég varð svo hissa yfir því sem ég sá að ég steingleymdi að taka mynd en þetta var eins og að horfa á risavaxna spiladós. Þarna var tromla sem pinnar gengu út úr rétt eins og í litlum spiladósum nema þessi var mjög stór. Á netinu fann ég að tromlan er 5 fet og 7 tommur á lengd og 9,8 tommur í þvermál! Hljómurinn kemur frá orgelpípum sem eru um meter á hæð það mesta. Ekki heyrði ég í 'nautinu' í þetta skiptið en kannski verður það síðar. Gaman væri ef einhver lesenda þessara orða hefur heyrt í því hljóðið.  Frá árinu 1997 hefur Salzburgarnautið verið á heimsminjaskrá UNESCO.

Heimildir:
http://www.salzstier.com/
http://www.salzstier.com/stierpics.htm

(Birtist áður á ragnargeir.blog.is)

Permalink Dags: 08.11.07. Flokkur: Dagbók. Ragnar Geir Brynjólfsson Email færði. 470 orð, 338 innlit.

Jóra í Jórukleif slær í borðið - ástæðan var léleg dagskrá RÚV sjónvarpsins

(Birtist 26.10.2007 á ragnargeir.blog.is)

Í hádeginu í gær, nánar tiltekið kl. 12.06 varð all snarpur jarðskjálftakippur undir Ingólfsfjalli. Á vef Veðurstofunnar stendur að skjálftinn hafi verið um 3 stig en ef jarðskjálftagraf sömu stofnunar er skoðað sýnist skjálftinn vera nær 3,5 stigum. Á vefnum stendur ennfremur að skjálfti hafi fundist á Selfossi og er það nú ekki ofsagt því þegar þetta gerðist var ég staddur í kjallara Fjölbrautaskólans og áhrif skjálftans voru ótvíræð þar. Það var eins og mikið högg hefði verið rekið undir húsið og það nötraði merkjanlega. Í grunnskóla hér á svæðinu frétti ég af því að stálpuð börn hafi orðið hrædd og þurfti hafi að róa þau.

=> Öll færslan...

Permalink Dags: 23.12.06. Flokkur: Efni Braga. Bragi Daníel Ragnarsson færði. 189 orð, 334 innlit.

Ofurormurinn

Einu sinni var ormur sem labbaði á gangstétt þar var hellingur af fólki á veginum. Þar var vísindamaður að labba með einhvern vökva. Vísindamaðurinn missti það á orminn. Ormurinn varð allt í einu gríðar massaður. Ormurinn var orðinn sterkur og fljótari að hlaupa.

=> Öll færslan...

Permalink Dags: 03.12.06. Flokkur: Dagbók. Ragnar Geir Brynjólfsson Email færði. 327 orð, 685 innlit.

Heitir bærinn Galtastaðir eða Galtarstaðir?

Í tilefni af umræðu og fréttaflutningi af fjarskiptamöstrum sem rísa áttu við bæinn Galtastaði á þessu ári langar mig til að tæpa á helstu atriðum um það sem mér er kunnugt um þetta bæjarnafn.

Í öllum þeim fréttum sem ég hef séð í blöðum Suðurlands um málið hefur bærinn alltaf verið nefndur Galtastaðir. Það er í samræmi við málvenju á svæðinu enda kannast enginn hér við að bærinn heiti Galtarstaðir.

=> Öll færslan...

Permalink Dags: 18.11.06. Flokkur: Dagbók. Ragnar Geir Brynjólfsson Email færði. 425 orð, 351 innlit.

Örstutt frásögn af Ólafi Ketilssyni

Fyrri árin sem ég stundaði nám við Menntaskólann að Laugarvatni (1977-1981) vorum við menntaskólakrakkarnir svo heppin að sá frægi maður og þá þegar þjóðsagnapersóna í lifanda lífi Ólafur Ketilsson ók okkur til og frá staðnum. Þegar ég lít aftur þá skil ég alltaf enn betur og betur að í þessum aldna en harðsnúna rútubílstjóra bjó stórbrotinn og eftirminnilegur persónuleiki. Einu sinni sem oftar sat hann með í bílnum þegar stórum hóp nemenda var ekið en ók ekki sjálfur.

=> Öll færslan...

Permalink Dags: 25.07.06. Flokkur: Dagbók. Ragnar Geir Brynjólfsson Email færði. 68 orð, 188 innlit.

Í sumarbústaðnum

Þessa vísu setti ég saman eftir skemmtilega sumarbústaðaferð í sveitina milli sanda um helgina.

Ekki er laust við að á mig sæki uggur,
Bærðust jú ekki þessar heytuggur?
Hví finnst mér ég hvorki heill né hálfur,
getur verið að á mig stari pínulítill álfur?
Ég gjóa augum órólega upp á fjöllin,
eru þau kannski að horfa á mig tröllin?

Permalink Dags: 25.06.06. Flokkur: Dagbók. Ragnar Geir Brynjólfsson Email færði. 27 orð, 364 innlit.

„Ammara vammara skammara skrum“

Þessi hlýtur að vera eftir Leirulækjar-Fúsa:

Ammara vammara skammara skrum
illt er að vera í Flóanum.
Ammara vammara skammara skrið
þó er enn verra Ölfusið.

Permalink Dags: 25.06.06. Flokkur: Dagbók. Ragnar Geir Brynjólfsson Email færði. 36 orð, 216 innlit.

„Flóanum hef ég ama á“

Kannast einhver við þessa vísu, getur verið að hún sé eftir Símon Dalaskáld líka?

Flóanum hef ég ama á
er þar draugasalur,
Illt er þér að flæmast frá
fallegi Laugardalur.

Permalink Dags: 25.06.06. Flokkur: Dagbók. Ragnar Geir Brynjólfsson Email færði. 69 orð, 179 innlit.

„Hefur lifað átján ár“

Aðra vísu orti Símon Dalaskáld um Guðrúnu Júlíu ömmusystur mína. Hún er svona:

Hefur lifað átján ár,
elsku vekur hlýja.
Heimasætan hrein og klár
hún Guðrún Júlía.

Júlía eins og hún var alltaf kölluð var fædd árið 1887. Þetta hefur því væntanlega verið ort árið 1905.

Permalink Dags: 21.06.06. Flokkur: Dagbók. Ragnar Geir Brynjólfsson Email færði. 140 orð, 336 innlit.

„Jón á Völlum velbýr snjöllum huga“

Ömmubróðir minn Guðmundur Jónsson sem bjó mest alla sína ævi á Syðra-Velli í Gaulverjabæjarhreppi sagði mér frá því að Símon Dalaskáld hafi eitt sinn komið að Syðra-Velli. Það mun hafa verið á fyrsta áratug 20. aldarinnar. Ekki man ég hvort hann segði að Gvendur dúllari hafi verið með í för en ég man eftir vísu sem Guðmundur fór með og sagði að Dalaskáldið hefði skilið eftir. Hún er svona:

Jón á Völlum velbýr snjöllum huga.
Fimm á dætur fallegar
og fjóra mæta synina.

Dæturnar voru: Guðrún Júlía, Halla, Guðbjörg, Guðlaug og Rannveig. Synirnir voru Guðmundur, Sigmundur, Árni og Sigurður. Þau voru fædd fyrir eða um aldamótin 1900.

Permalink Dags: 15.06.06. Flokkur: Dagbók. Ragnar Geir Brynjólfsson Email færði. 3487 orð, 603 innlit.

Angel ráðstefnan 2006

Angel ráðstefnan 2006 var að þessu sinni haldin í Louisville í Kentucky þriðjudaginn 6. og miðvikudaginn 7. júní. Fyrir þau sem ekki vita þá er Angel heiti á kennsluumsjónarkerfinu sem FSu, MH, FSN og MA nota. Ráðstefnan var haldin á Marriott Louisville hótelinu sem er staðsett í miðju Louisville.

Marriott hótelið í Louisville
Marriott hótelið í Louisville.

Þar sem dagurinn áður var annar í hvítasunnu var erfitt að komast frá Íslandi með flugi öðruvísi en að missa af stórum hluta fyrsta ráðstefnudagsins. Því tók ég það ráð að sameina ráðstefnuferðina sumarferðinni og fljúga með fjölskylduna til Baltimore og aka þaðan til Róanóke í Virginiu þar sem tengdasystir mín og svili búa. Frá Róanóke ókum við svo til Louisville og tók sú ferð 9 tíma í bílnum.

Frá miðbæ Louisville
Frá miðbæ Louisville.

Ég sé ekki eftir að hafa haft þennan háttinn á því býsna mikilvægar nýjungar voru kynntar fyrir hádegi á þriðjudeginum.

=> Öll færslan...

Permalink Dags: 01.05.06. Flokkur: Dagbók. Ragnar Geir Brynjólfsson Email færði. 493 orð, 1113 innlit.

Fornmannahaugar í Villingaholtshreppi?

Í Flóamanna sögu er sagt frá tveim bardögum sem áttu sér stað í Orrustudal í Villingaholtshreppi. Á vefnum www.floi.is má lesa um bardaga þessa.

Á öndverðri síðustu öld var bóndi í Irpholti og síðar Vatnsholti í Villingaholtshreppi Jón Brynjólfsson. Hann veitti eftirtekt og velti fyrir sér hvort þrír hraukar við mynni Orrustudals gætu verið haugar einhverra þeirra manna sem létust í umræddum bardögum. Ójöfnur þessar eru ekki mjög áberandi í umhverfinu og ókunnugum gæti virst sem svo að frost síðasta vetrar hefði ýtt jarðveginum upp, en svo er ekki. Þeir eru búnir að vera þarna og útlit þeirra hefur lítið breyst síðustu áratugina. Örnefnið „þrælaleiðin“ hefur fylgt Orrustudal og var hugmynd Jóns sú að þessar ójöfnur gætu hugsanlega átt við þau. Til að sjá þetta er hægt að beygja af Suðurlandsvegi um Flóa niður í Villingaholtshrepp og aka í um 5 mínútur að afleggjaranum að Skagási, skógræktarreit Villingaholtshrepps. Myndin hér fyrir neðan er tekin við afleggjarann og benda örvarnar ójöfnurnar.

Skagás í Villingaholtshreppi
Á myndinni benda örvarnar á hraukana. staðsetningarhnit hrauksins lengst til hægri eru N 63°53'59,3" og W 20°48'05,9". Hnit hrauksins í miðjunni eru N 63°54'00,3" og W 20°48'04,6" og hnit þess lengst til vinstri eru N 63°54'00,5" og W 20°48'04,6".

Móðir Jóns Brynjólfssonar hét Valgerður Guðmundsdóttir. Hún var fædd í Önundarholti í Villingaholtshreppi árið 1830. Önundur bíldur bjó í Önundarholti skv. Flóamanna sögu. Valgerður ólst upp í Önundarholti og átti þar heimili þangað til hún giftist Brynjólfi á Sóleyjarbakka. Irpholt heitir jörð nálægt Önundarholti og var hún erfðahlutur systkynanna á Sóleyjarbakka og féll Irpholtið í hlut Jóns sem bjó þar um tíma. Bæði Jón og móðir hans voru því gjörkunnug á þessum slóðum, en Önundarholt og Irpholt, sem nú er í eyði, eru skammt sunnanvert við Orrustudal. Jón hafði það eftir móður sinni að heimilisfólk í Önundarholti hefði talið sig vita hvar haugur Önundar bílds var á þessum tíma, þ.e. um miðja 19. öld. Þessi haugur var að mestu jafnaður út þegar núverandi tún var rutt líklega fyrir 1930 og sá haugur sem nú er talinn vera haugur Önundar er ekki á þeim stað sem Jón Brynjólfsson taldi hann vera og mun ef til vill vera um ágiskun fólks sem síðar kom á bæinn að ræða. Ef staðnæmst er á þjóðveginum við Önundarholt sést túngarður fyrir sunnan veginn. Á þeim slóðum taldi heimilisfólk í Önundarholti haug Önundar bílds vera á 19. öld. Staðsetningarhnit þessa punkts eru N 63°50'48,4" og W 20°49'20,7".

Skrifað í apríl/maí 2006 eftir frásögn Brynjólfs Guðmundssonar systursonar Jóns Brynjólfssonar.
[1] Þjónustu- og upplýsingavefur Ferðamálanefndar Austur-Flóa. http://www.floi.is

Permalink Dags: 18.03.06. Flokkur: Dagbók. Ragnar Geir Brynjólfsson Email færði. 1373 orð, 838 innlit.

Þuríður og Kambsránið

Föstudagskvöldið 17. mars sl. fór ég í leikhúsið við Sigtún á Selfossi og sá uppfærslu Leikfélags Selfoss á verkinu „Þuríður og Kambsránið“ eftir Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson, en það er byggt á sögu Brynjólfs Jónssonar frá Minna-Núpi. Leikstjóri er Jón St. Kristjánsson.

Þær sýningar í leikhúsinu við Sigtún sem ég hef farið á eru allar eftirminnilegar og þessi er engin undantekning. Gamla Iðnskólanum á Selfossi var breytt í leikhús með sal sem rúmar á að giska 100 manns í sæti. Á viðarþiljuðum veggjum hanga myndir sem tengjast þeim verkum sem Leikfélagið hefur sýnt í gegnum tíðina. Leikhúsgestir skrá sig í gestabók í litlu anddyri. Miðasalan er ekki bakvið lúgu heldur skrifborð þegar inn er komið. Það er eitthvað við þessi gömlu og þröngu leikhús sem heillar. Eitthvað persónulegt innilegt og nálægt. Svipuð tilfinning og ég fann alltaf fyrir í Iðnó, gamla leikhúsinu við Tjörnina í Reykjavík, nema hér er hún sterkari. Nálægð Ölfusár spillir ekki fyrir, sem og nálægð kaffi Krúsar en leikhúsið stendur handan við árgötuna skammt frá ánni en líka steinsnar frá Austurveginum. Leiksýningar leikfélagsins síðustu ár hafa allar verið farsælar að því er ég best veit. Það má leika sér að þeirri hugsun að þessi fallegi rammi eigi sinn þátt í þeirri velgengni án þess að gert sé lítið úr því sem á fjölunum hefur birst, það hefur staðið fyrir sínu.

=> Öll færslan...

Permalink Dags: 14.03.06. Flokkur: Dagbók. Ragnar Geir Brynjólfsson Email færði. 756 orð, 482 innlit.

Metanmáinn Títan

Á Títan er bálahvasst, fimbulkalt, himininn er appelsínugulur, gosvirkni spýtir metangasi út í loftjúpinn og sumir telja að "hraunið" samanstandi af ammoníaksblönduðu vatni! Yfirleitt er þar þurrt og kalt en á nokkurra alda fresti geisa þar ofboðsleg stórviðri, metanið þéttist og myndar ár og vötn. Hljómar ekki mjög spennandi. Líklega mun seint verða lögð drög að mannaðri för þangað.

Í desember og marsheftum tímaritsins Sky and Telescope eru fróðlegar greinar um niðurstöður rannsókna á Títan - einu af tunglum Satúrnusar.

Þangað til í júlí 2004 var Títan stærsta tungl reikistjörnunnar Satúrnusar hulinn heimur. En síðan þá hefur Cassini könnunarfarið frá NASA beint ratsjánni að tunglinu alls þrisvar sinnum af átta skiptum sem það hefur farið nálægt. Radarmyndir frá Cassini m.a. frá því 7. september ásamt niðurstöðum úr ferð Huygens könnunarfarsins sem Evrópska geimrannsóknarstofnunin sendi þangað eru að ljúka upp nýrri sýn á heim tunglsins. Huygens lenti á Títan hinn 14. janúar 2004. Títan er með lofthjúp og fast yfirborð líkt og t.d. Jörðin og Mars. Hitinn á yfirborðinu var um -180 gráður en hæstur -86 gráður í 250 km. hæð. Loftþrýstingur var um 1,5 loftþyngd við yfirborð. Lofthjúpur Títan samanstendur að mestu af köfnunarefni líkt og lofhjúpur Jarðar, hann er líka „vökvaknúinn“ en á Títan er það metan (CH4) sem myndar vökvann en ekki vatn eins og á Jörðinni.

=> Öll færslan...

Permalink Dags: 06.03.06. Flokkur: Dagbók. Ragnar Geir Brynjólfsson Email færði. 514 orð, 355 innlit.

UT2006

Föstudaginn 3. mars sl. sótti ég ráðstefnuna UT 2006 sem haldin var í hinum nýja og glæsilega Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Ég hafði bæði gagn og gaman af ferðinni. Umgjörð ráðstefnunnar og framkvæmd hennar var vel heppnuð og eiga aðstandendur hennar þakkir skildar. Boðið var upp á það nýmæli að í aðal ráðstefnusalnum var fartölva á hverju borði og bauðst ráðstefnugestum að varpa athugasemdum upp á tjald í gegnum msn. Þetta stuðlaði að því að losa um málbein ráðstefnugesta og umræðurnar urðu bæði fjörlegri og líflegri en þær hafa verið á undanförnum ráðstefnum. Fjallað var m.a. um kennsluaðferðir, dreifmennt, menningarnet, hefðbundnar og nýjar kennsluaðferðir, hugkort, íslenskunám á netinu, heimanám, verklag og verkstæðiskennslu, hljóðglærur,sveigjanleika og einstaklingsmiðun og námsumhverfi. Boðið var upp á samtal við nemendur og prófun á námsumhverfunum Angel, Námsskjárinn, WebCT, MySchool og Moodle.

=> Öll færslan...

Permalink Dags: 14.02.06. Flokkur: Dagbók. Ragnar Geir Brynjólfsson Email færði. 535 orð, 401 innlit.

Fartölvur í lausu lofti

Flestum er í fersku minni dugmikið átak stjórnvalda að koma á fartölvunotkun í framhaldsskólum en það hófst árið 2000. Skólarnir væddust þráðlausum netkerfum og margir nemendur festu kaup á fartölvu. Nú er svo komið að fartölvueign framhaldsskólanema er því sem næst 35%. [1]

Þessi þróun er góð og gild enda er svo komið að þeir sem ekki eru handgengnir slíku tæki þegar í háskóla kemur eru ef að líkum lætur verr búnir en hinir. Staðan virðist samt vera sú að stjórnvöld hafi hætt við hálfklárað verk í fartölvuvæðingunni. Framhaldsskólarnir bjóða upp á aðgengi að þráðlausum netum og kennsluhættir eru víða að breytast. Samt sem áður telja skólarnir sig ekki geta gert þá kröfu að nemendur sem þess þurfa verði sér úti um fartölvu, þó með einni undantekningu. Þetta hefur í för með sér að skólarnir þurfa að halda úti tvöföldu kerfi. Annars vegar er þunglamalegt kerfi miðlægra netþjóna, tölvustofa og nú í seinni tíð fartölvuvagna til að koma til móts við þá sem ekki hafa aðstöðu til að mæta með fartölvu og hins vegar kerfi þráðlausra senda til að mæta þörfum fartölvunemenda. Úthald á tvöföldu kerfi kallar á fjármuni því að báðum kerfunum þarf að standa með myndarskap.

=> Öll færslan...

Permalink Dags: 13.02.06. Flokkur: Dagbók. Ragnar Geir Brynjólfsson Email færði. 1353 orð, 334 innlit.

Hulduhundurinn

Saga þessi gerist á síðari helmingi 20. aldar á sveitabæ á sunnanverðu Íslandi í héraði því sem stundum er nefnt Flói. Það var á dimmu vetrarkvöldi. Það snjóaði og kyngdi snjónum niður í stórum flyksum. Bóndinn á bænum hafði farið út í fjósið til að mjólka kýrnar ásamt tengdaföður sínum. Á þessum árum rann mjólkin ekki í rörum eins og síðar varð heldur þurfti að bera mjaltavélaföturnar með mjólkinni í út í mjólkurhúsið í hvert skipti þegar þær fylltust. Þar var mjólkinni hellt í gegnum sigti niður í stóra brúsa, svonefnda mjólkurbrúsa. Þannig var það líka þetta tiltekna kvöld. Mennirnir mjólkuðu þegjandi, hlustuðu á útvarpið og skellina í mjaltavélunum. Mjólkurhúsið á þessum bæ lá rétt við útidyr fjóssins og var beygt til hægri inn í mjólkurhúsið strax og komið var út úr fjósinu.

Einu sinni sem oftar fór bóndinn með fulla mjaltavélarfötu út í mjólkurhúsið og hellti úr henni í mjólkursigtið. Þegar hann snýr sér við til að ganga út úr mjólkurhúsinu þá sér hann að í dyrum mjólkurhússins stendur stór og fallegur alhvítur hundur, loðinn með lafandi eyru og horfir á hann. Bóndinn sneri inn í fjósið og kallaði á tengdaföður sinn að koma og sjá hundinn.

=> Öll færslan...

Permalink Dags: 28.01.06. Flokkur: Ljóð, Árstíðirnar. Brynjólfur Guðmundsson Email færði. 32 orð, 163 innlit.

Vetrarblóm

Frostrós á ís
útsprúngin
breiðir út
blöð sín á ísinn

Ég skautaði
á ísnum
gerði rispur
í blöð þín
vetrarblóm

Nú geymi ég gömlu
skautana mína á safni

Permalink Dags: 20.01.06. Flokkur: Dagbók. Ragnar Geir Brynjólfsson Email færði. 734 orð, 388 innlit.

Skeiðað framhjá skýjakljúfum

Flestum ætti að vera kunnugt um tillögur athafnamanna að skipuleggja svæði og reisa 15 hæða blokkir í miðju Selfoss, svokallaða Miðju.[1] Allur áhugi og framtakssemi í þessum málum er jákvæður og hann ber að lofa. Þetta vekur eflaust marga til umhugsunar um að Selfoss er hægt og bítandi að breytast úr sveitaþorpi í meðalstórt bæjarfélag og ekki sé fráleitt að fara að huga að heildarmynd bæjarfélagsins, sérstaklega þar sem tóm og rými gefst enn til slíkra hugleiðinga.

Í þessu ljósi er vert að gefa gaum að menningarlegu og sögulegu umhverfi staðarins og því hvernig hann hefur byggst upp. Það sem einkennir staðinn er fyrst og fremst flatlendi og landrými virðist nægilegt þegar horft er þangað. Fjöllin eru þó ekki langt í burtu og mynda fallegan sveig fyrir norðan.

=> Öll færslan...

Permalink Dags: 15.01.06. Flokkur: Efni Braga. Bragi Daníel Ragnarsson færði. 58 orð, 145 innlit.

Dýr éta hvort annað

Einu sini var skunkur og þá kom hundur og át skunkinn þá kom úlfur og át hunndin þá kom tígrisdýr og át úlfinn og svo kom krókódíll og át tígrisdýrið og þá kom björn og át krókódílinn og björninn át svo mikið að hann þufti ekki að borða meir.

Permalink Dags: 15.01.06. Flokkur: Efni Braga. Bragi Daníel Ragnarsson færði. 40 orð, 149 innlit.

Háma í sig

Einu sini var karl sem borðaði allt í heiminum og allt sem hann sá og allt sem hann átti og þegar hann borðaði allt í heiminum var han svo svangur að han borðaði sig sjálfan.

Permalink Dags: 14.01.06. Flokkur: Efni Braga. Bragi Daníel Ragnarsson færði. 53 orð, 247 innlit.

Fá marga fiska úr sjónum

Einu sini var síld og þá kom fiskur sem át síldina og þá kom stór fiskur og þá kom ennþá stæri fiskur og át hinn fiskinn og þá kom hákarl og át fiskinn og maður var að veiða og veiddi hákarlinn og maðurinn fékk marga fiska. Endir.

Permalink Dags: 14.01.06. Flokkur: Efni Braga. Bragi Daníel Ragnarsson færði. 28 orð, 298 innlit.

Dimmuljóðið

Dimma fór út á strönd
og hitti gamla önd
og Dimma er hundur og þá hélt
gamla öndin að Dimma var önd og þau urðu vinir

Permalink Dags: 14.01.06. Flokkur: Efni Braga. Bragi Daníel Ragnarsson færði. 7 orð, 149 innlit.

Bragi 8 ára

Ég heiti Bragi og ég er 8 ára.

Permalink Dags: 24.12.05. Flokkur: Ljóð. Brynjólfur Guðmundsson Email færði. 53 orð, 160 innlit.

Skýjaglópar

Til okkar sem sjá
myndlausa skugga
af skýjum
svífa til jarðar
sjáum náttúruna öðruvísi

Búum til ljóð
um haf himin
vindinn ástina
svik dauða drauma
vöknum í morgunroðanum

Eigum samleið
stutta stund
einginn sá okkur koma
einginn fara
við erum skýjaglópar

:: Næsta síða >>

Aðalbók

Síðustu athugasemdir
  • Heitir bærinn Galtastaðir eða Galtarstaðir? ( 06.04.2008 kl. 19.47)
  • Heitir bærinn Galtastaðir eða Galtarstaðir? ( 24.12.2006 kl. 12.55)
  • Metanmáinn Títan ( 03.12.2006 kl. 09.49)
  • Angel ráðstefnan 2006 ( 30.11.2006 kl. 13.07)
  • Minningabrot frá stríðsárum ( 15.07.2006 kl. 09.37)
  • hvað er blandað saman ( 27.06.2006 kl. 10.30)
  • Dimmuljóðið ( 27.06.2006 kl. 10.28)
  • Heimsókn ( 27.06.2006 kl. 10.21)
  • Það er draumur þinn jörð ( 27.06.2006 kl. 10.07)
  • „Jón á Völlum velbýr snjöllum huga“ ( 25.06.2006 kl. 13.40)
  • Angel ráðstefnan 2006 ( 18.06.2006 kl. 00.37)
  • Gamlir leikstaðir ( 31.05.2006 kl. 09.10)
  • Leit

    Google
    WWW vina.net

    Ýmisl.

    Tengd(ur)

    • Guest Users: 1

    powered by
    b2evolution